laugardagur, september 24, 2005

Steini með dökka hárið.


Steini ákvað að verða aftur hann sjálfur. Enda er hann miklu sætari þannig. Gunnu Steina grunar að ákveðnar dömur í gagnfræðaskólanum hafi jafnvel stungið því að honum að það færi honum betur að vera dökkhærður. En það er líka allt í lagi að breyta til og prófa eitthvað annað en menn mega líka skipta um skoðun. Af Steina er annars það að frétta að hann er kominn í rafgítarnám í Tónlistarskóla Mosfellsbæjar og heitir kennari hans Andrés. Hann er líka einu sinni í viku í tónfræði. Gunna Steina keypti fyrir hann á netinu tónlistarforrit sem Steini fann sjálfur. Hann getur samið lög með þessu forriti og það er uppáhaldstónstundaiðja hans um þessar mundir og er hann búinn að semja fullt af lögum. Hver veit nema eitthvert þeirra eigi eftir að heyrast einhvern tímann í Músiktilraunum!

1 Comments:

At 7:41 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Alvöru rokkarar eru líka með dökkt hár!!!

p.s. kannski að ég fái að vera með í hljómsveitinni þegar ég verð orðin fær á bongótrommurnar mínar

 

Skrifa ummæli

<< Home