föstudagur, júní 29, 2007

Heppinn



Hann Viktor Elí er svo rosalega heppinn að fá ís í eftirmat.

miðvikudagur, júní 13, 2007

Rúna litla


Hér situr Rúna á tröppunum hjá afa og ömmu. Henni finnst líka mjög gaman að hoppa í tröppunum og fara út á róló og láta ömmu ýta.

mánudagur, júní 04, 2007

Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyri blasir við út um gluggann á íbúðinni á stúdentagörðunum sem Stamos er með á leigu í sumar. Hingað er ég komin til þess að taka við íbúðinni fyrir hönd Stamos. Það er skemmtileg tilviljun að ég skuli líka vera nemandi við háskólann. Ekki víst að þeim detti það í hug stúdentunum sem ég er að mæta á göngunum að þessi gamla hafi jafnvel verið með þeim í kúrs í vetur. En mér hefur gengið mjög vel og get ekki annað en haldið áfram næsta vetur.

sunnudagur, júní 03, 2007

Í Eyjafirði

Það er fallegt í Eyjafirði þessa dagana. Bjart veður og allt orðið grænt. En ennþá er snjór í fjöllum ekki síst útvörðum fjarðarins og hæstu fjöllunum í kring. þessi mynd er tekin utan við Dalvík og blasir Látraströndin við handan fjarðarins.