sunnudagur, desember 10, 2006

Guðrún Jóna Sturludóttir


Hún Rúna litla er orðin nokkuð stór. Verður tveggja ára í febrúar. Hún er hætt að gráta þegar hún heldur að amma sé að fara að passa hana og er bara nokkuð sátt enda bralla þær ýmislegt saman: syngja, dansa, lita, lesa bækur, horfa á sjónvarpið og klappa kisu.

föstudagur, desember 01, 2006

Tveir góðir á gítarinn


Þeir bræður Sturla og Steini eru báðir tónlistaráhugamenn og hafa gaman af að spila á gítar og semja tónlist. Það kemur fyrir að þeir stilli strengi sína saman og taki svo sem eitt gott lag.