Mosi
Nýjasta málverkið í Gallerí Gunnu er af mýrarmosa. Ekki er viðfangsefnið listamanninum ókunnugt. Má segja að mýrarmosinn sé honum mjög hugleikinn. Efnið , sem málað er á, er óvenjulegt. Það er svart með litlum dúskum. Gunna Steina saumaði eitt sinn á sig selskabsjakka úr efninu. Og vegna þess að hún hefur aldrei tímt að henda afgöngum af efnum átti hún til þennan efnisbút sem hún grunnaði og strekkti á ramma. Þetta kom mjög skemmtilega út og nú er Gunna Steina búin að strekkja á fleiri ramma og er að hugsa um að fórna sjálfum selskabsjakkanum því ekki eru til fleiri bútar.
Ekki er ósennilegt að henni gefist góður tími til að mála næstu vikurnar á meðan hún þarf að dveljast heima við.
1 Comments:
Ef ég væri heima þá væri ég búin að panta eitt stykki mosamynd. Alveg mínir litir!
Kveða frá Ástralíu
Skrifa ummæli
<< Home