sunnudagur, ágúst 05, 2007

Í Eyjafirði


Það hefur verið mikið fjör á Akureyri á hátíðinni "Ein með öllu," enda er ekki bannað fyrir 56 ára og eldri. Veðrið er líka að breytast. Það er að koma sunnan átt með þessari frægu Akureyrsku blíðu sem Akureyringar monta sig mikið af.

Í dag fórum við í bíltúr fram í Eyjafjörð eins og það heitir hér um slóðir. Sunnlendingar segja inn í Eyjaförð. Við komum meðal annars við á Grund í Eyjafirði.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home